Íþróttaskóli Vals - Skráning á haustönn opnar fimmtudag

Skráning á haustönn í íþróttaskóla Vals opnar á morgun, fimmtudaginn 18. ágúst. Fyrsti tími haustannar er laugardaginn 27. ágúst. Minnum á að námskeiðið fyllist hratt og því mikilvægt að ganga frá skráningu sem fyrst. Skráning fer fram á skráningarsíðu félagsins sportabler.com/shop/valur 

Fyrir hverja er íþróttaskólinn?

Íþróttaskólinn er hugsaður fyrir leikskólabörn sem fædd eru 2017-2021 (eða frá 18 mánaða - 5 ára), en markmið hans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum.

Skólinn verður starfræktur á laugardagsmorgnum í Valsheimilinu að Hlíðarenda

  •  Börn fædd 2020-2021 (f.  1. jan - 1. maí):    Eiga tíma frá kl. 9:00-9:40
  •  Börn fædd 2017-2019:    Eiga tíma frá 9:45-10:25

Stjórnendur 

Stjórnandi íþróttaskólans er Tanja Geirmundsdóttir en hún hefur starfað við skólan um árabil og verður veturinn fullur af fjöri og skemmtun fyrir krakkana.   

Minnum á að mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í skólann til þess að ná örugglega plássi.  Það er gert á skráningasíðu félagsins: www.sportabler.com/shop/valur  

Foreldrar, forráðamenn og aðrir sem fylgja börnum á æfinguna eru hvattir til að taka virkan þátt og aðstoða börnin í leik og hreyfingu. Mikilvægt er að mæta í þægilegum fötum og gott að vera berfætt til að ná sem bestu gripi á gólfinu.