Viktor Sigurðsson semur við handknattleiksdeild Vals

Viktor Sigurðsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val en þessi 21 árs gamli leikmaður kemur til liðsins frá ÍR þar sem hann er uppalinn. Viktor varð fjórði markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar á leiktíðinni með 127 mörk í 22 leikjum.

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals:

"Viktor er gríðarlega efnilegur og hefur vakið mikla athygli í Olísdeildinni. Við höfum fylgst með honum lengi enda með spennandi eiginleika sem leikmaður sem verður gaman að vinna með. Hann mun passa vel við okkar leikstíl og ekki skemmir fyrir að þetta er góður drengur sem talað er vel um upp í Breiðholti. Okkur hlakkar til að aðstoða hann í að bæta sig og ná markmiðum sínum hér að Hlíðarenda."

Við bjóðum Viktor hjartanlega velkominn í Val.