Knattspyrnufélagið Valur 112 ára í dag

Kæru Valsarar, fimmtudaginn 11. maí fögnum við 112 ára afmæli Vals.

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði en klukkan 17:00 verður lagður blómsveigur við styttu séra Friðriks og eftir það verður boðið upp á kaffi og köku í veislusölum félagsins strax í kjölfarið.

Mætum og gerum okkur glaðan dag - Áfram Valur!