Herrakvöld Vals föstudaginn 2.nóvember

Þá er að koma að hinu árlega Herrakvöldi Vals en það fer fram að Hlíðarenda föstudaginn 2.nóvember. Venju samkvæmt má búast við því að það verði uppselt og því er betra að skrá fyrr en seinna til að fá miða. Miðaverð er óbreytt eða 6.900.- og opnar húsið  kl.19:00. Hægt er að skrá sig með því að hafa samband við skrifstofu félagsins í 414-8000 eða senda tölvupóst á valur@valur.is