Íþróttamaður Vals 2023 - Gámlársdag kl. 12:00
![](/media/434784/valur_merki_frontur_news_main.jpg)
Á gamlársdag fer fram venju samkvæmt, val á Íþróttamanni Vals. Þetta verður í 31. skipti sem að valið fer fram og hvetjum við Valsara til að fjölmenna að Hlíðarenda og fá sér kaffi og kökubita.
Val á íþróttamanni Vals skipar veigamikinn sess í starfi félagsins og er gaman að sjá hversu margir leggja leið sína að Hlíðarenda til að taka þátt í viðburðinum.
Dagskráin hefst stundvíslega kl. 12:00 í veislusölum félagsins og hlökkum við til að sjá sem flesta Valsara, unga sem aldna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Pavel Ermolinski íþróttamann Vals 2022.
![](/media/427898/__r_ttama_ur_vals_2022_pavel.jpg)