Knattspyrnufélagið Valur 114 ára!

Þann 11. maí síðastliðinn fagnaði félagið 114 ára afmæli. Ásamt því var nýr gervigrasvöllur vígður.
Dagskráin hófst á vígslun nýja vallarins. Hörður Gunnarsson, formaður Vals, byrjaði á því að segja nokkur orð og í framhaldi af því klippti hann borðann og vígði formlega nýjan knattspyrnuvöll, ásamt Valgerði Mariju, Íþróttafulltrúa Vals. Lísa Ingólfsdóttir, leikmaður 3.flokks kvenna, fékk heiðurinn á því að skora fyrsta markið á glænýja vellinum.
Leikmenn meistaraflokka Vals í knattspyrnu leiddu iðkendur félagsins í gegnum skemmtilegar þrautir.
Að dagskránni lokinni á vellinum var boðið upp á afmæliskaffi í Fjósinu þar sem við fögnuðum 114 ára afmæli Vals.


