Skólastjóri sumarstarfs Vals

Knattspyrnufélagið Valur óskar eftir að ráða til sín
einstakling í hlutverk skólastjóra sumarstarfs Vals.
Skólastjóri þarf að vera til takts og leiðbeina starfsmönnum
námskeiðanna ásamt því að sjá um umsjón dagskrár, samskipti við
foreldra, undirbúning námskeiðs og tiltekt eftir
námskeið.
Viðkomandi þarf að vera ábyrgur einstaklingur og reka
dagskránna með jákvæðni og þolinmæði að leiðarljósi.
Starfstímabil er frá 8.júní til 17/24.júlí 2026.
Mikilvægt er að skólastjóri sé ávallt á staðnum á
dagvinnutíma frá 08:30-16:30 en námskeiðin standa yfir frá kl.
09:00-16:00.
Góð laun í boði og hentugt sumarstarf fyrir
háskólanema.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur sumarnámskeiðs og leiðbeinandi
starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf
- Æskilegt er að hafa reynslu á kennslu og/eða
frístundastarfi með 1.-4. bekk í grunnskóla.
- Viðkomandi þarf ekki að vera íþróttasinnaður en auðvitað er
það kostur.
- Reynsla af vinnu með börnum er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Vala, Íþróttafulltrúi
Vals.
Allar umsóknir má senda á vala@valur.is, ásamt ferilskrá og
kynningarbréfi.
Umsóknir skulu berast fyrir 2.mars 2026.














