Knattspyrnufélagið Valur auglýsir starf yfirþjálfara yngri flokka í knattspyrnu

Knattspyrnufélagið Valur leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að gegna starfi yfirþjálfara yngri flokka í knattspyrnu.  

Um er að ræða lykilhlutverk innan barna- og unglingastarfs félagsins þar sem yfirþjálfari ber faglega ábyrgð á skipulagi, framkvæmd og þróun þjálfunar fyrir leikmenn á aldrinum 4-18 ára 2.-8.  flokkur, karla og kvenna. Markmið starfsins er að tryggja faglegt, samræmt og uppbyggjandi íþróttastarf sem tekur mið af þroska, getu og markmiðum hvers og eins iðkanda, í samræmi við stefnu og gildi félagsins.  

Helstu verkefni og ábyrgð   

  • Fagleg stefnumótun og  samræming þjálfunar í öllum yngri flokkum  

  • Fagleg handleiðsla og stuðningur við aðal- og aðstoðarþjálfara í samræmi við námskrá Vals og KSÍ  

  • Efling samstarfs og samræmis í vinnubrögðum milli þjálfara og flokka  

  • Eftirlit með framkvæmd æfinga og einstaklingsmiðaðri nálgun í þjálfun  

  • Reglubundið mat á framförum  iðkenda með tilliti til tæknilegra, líkamlegra og félagslegra þátta  

  • Samskipti við foreldra í samráði við þjálfara og starfsfólk  

  • Samstarf við meistaraflokka félagsins um uppbyggingu og framgang leikmanna  

  • Samvinna við þjálfara annarra deilda innan félagsins  

  • Ábyrgð á skipulagningu æfingatöflu og  samræmingu við aðrar deildir  

  • Skipulagning fræðslu og starfsþróunar fyrir þjálfara  

  • Tekur þátt í helstu viðburður deildarinnar  

  • Innleiðing nýjustu aðferða og hugmyndafræði í þjálfun barna og unglinga  

 

Hæfniskröfur   

  • KSÍ A gráða 
  • Reynsla af þjálfun barna og/eða unglinga  

  • Leiðtogahæfni og góð samskiptafærni  

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Áhugi á uppbyggingu og þróun yngri flokka starfs  

  • Jákvætt viðhorf og hæfni til að starfa í teymi  

Starfshlutfall  

Starfshlutfall er samkomulagsatriði og tekur mið af umfangi starfsins, en miðað er við 70% starf.   

Umsóknir  

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið með því að senda ferilskrá og kynningarbréf á netfangið  valur@valur.is.

Umsóknarfrestur er til 15.mars.