Fræðsluefni: Konur og íþróttir

Konur í íþróttum er fræðsluþáttaröð um og fyrir konur og er samstarfsverkefni HR, KSÍ, ÍSÍ og UMFÍ. Markmið verkefnisins er að auka fræðslu og þekkingu með það að leiðarljósi að hámarka frammistöðu, draga úr líkum á meiðslum og stuðla að bættri heilsu og velsæld íþróttakvenna á öllum aldri.

Í þessari fræðsluþáttaröð fara sérfræðingar á sínu sviði yfir ýmsa þætti sem einkenna íþróttakonur á einn eða annan hátt út frá bestu vísindalegu þekkingu dagsins í dag. Fræðslan samanstendur annars vegar af styttri myndböndum eða fræðslumolum sem ætlaðir eru fyrst og fremst fyrir ungar íþróttakonur (10-18 ára) og hins vegar lengri fræðslufyrirlestrum fyrir eldri íþróttakonur, þjálfara, foreldra og aðra áhugasama.

Fræðsluefnið má finna hér.