Skólaleikar Vals 2026

Miðvikudaginn 18. mars fóru fimmtándu Skólaleikar Vals fram að Hlíðarenda við frábærar aðstæður.
Á leikunum keppa nemendur í 5.-7. bekk úr Austurbæjarskóla, Háteigsskóla og Hlíðaskóla í fjölbreyttum greinum þar sem leikgleði og samvinna eru í forgrunni. Í ár voru kynntar til leiks nokkrar nýjungar, meðal annars körfuboltakeila í stað hefðbundins körfuboltaskots. Þá var boðhlaupinu breytt þannig að keppendur notuðu badmintonspaða og flugu, auk þess að fara hluta leiðarinnar á bretti. Keppnin var jafnari en nokkru sinni fyrr og stemningin í N1 höllinni náði hámarki þegar leikarnir hófust.
Fyrsta greinin var skotbolti, þar sem skólarnir stóðu nokkuð jafnir. Hlíðaskóli náði þó bestum árangri og sigraði flestar sínar viðureignir. Háteigsskóli fylgdi fast á eftir og Austurbæjarskóli var aðeins tveimur stigum á eftir.
Í körfuboltakeilu, sem var ný grein í ár, var það Háteigsskóli sem stóð uppi sem sigurvegari, með Hlíðaskóla og Austurbæjarskóla skammt undan.
Í boccia-keppninni hafði Háteigsskóli einnig betur, vann fjórar viðureignir á meðan Hlíðaskóli og Austurbæjarskóli unnu eina hvor.
Eftir fyrstu þrjár greinarnar hafði Hlíðaskóli náð sex stiga forskoti og spennan var orðin mikil.
Næst var keppt í boðhlaupi, þar sem Háteigsskóli sýndi mikinn styrk og vann allar sínar viðureignir. Með því náðu þeir þriggja stiga forskoti fyrir lokagreininni, reipitogi. Hlíðaskóli og Austurbæjarskóli enduðu jafnir í þessari grein.
Í reipitoginu mætti Háteigsskóli með forskot og stóð vel undir væntingum. Þrátt fyrir að Hlíðaskóli ynni flestar viðureignir í greininni dugði það ekki til sigurs. Að lokum stóð Háteigsskóli uppi sem sigurvegari Skólaleika Vals 2026, aðeins einu stigi á undan Hlíðaskóla.
Á leikunum var einnig kynntur nýr bikar, Liðsbikarinn, sem veittur er því liði sem sýnir framúrskarandi liðsheild og samvinnu. Austurbæjarskóli hlaut þann heiður í fyrsta sinn fyrir mikla seiglu og samheldni frá upphafi til enda leikanna. Þá fékk Hlíðaskóli viðurkenningu fyrir besta stuðningsmannaliðið, þó öll liðin hafi notið öflugrar hvatningar.
Knattspyrnufélagið Valur þakkar öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd leikanna fyrir frábæran dag.
Áfram Valur!
Sigurvegarar skólaleikanna:
Hlíðaskóli: 2010, 2011, 2012, 2015, 2018, 2019, 2022, 2023, 2025
Austubæjarskóli: 2013, 2014, 2016
Háteigsskóli: 2009, 2017, 2026






























