Fyrirlestur um kvíða barna

Þriðjudaginn 24.mars fengum við til okkar Dr. Brynjar Halldórsson til þess að fræða foreldra og forsjáraðla um kvíðavanda hjá 5-12 ára börnum. 

Í fræðslunni var farið yfir eðli, birtingamyndir og áhrif kvíðavanda á daglegt líf barna, Ásamt því að kynnt var nýja stafræna meðferðarúrræðið FLIKK sem hefur það markmið að veita börnum með kvíða og foreldrum þeirra stuðning mun fyrr en áður hefur verið mögulegt.

Fræðslan heppnaðist með príði og var aðsókn góð. Í lok fræðslu áttu sér stað áhugaverðar umræður þar sem allir tóku virkan þátt.

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna en einnig þökkum Dr. Brynjari kærlega fyrir okkur!

Áfram Valur!