Páskanámskeið Vals í körfubolta

Dagana 30.mars til 1.apríl fór fram Páskanámskeið Vals í körfubolta fyrir iðkendur á aldrinum 8 til 12 ára.
Ágúst Björgvinsson, yfirþjálfari deildarinnar, ásamt Friðrik Þjálfa, þjálfara deildarinnar, voru með umsjón á námskeiðinu. Um 30 iðkendur sóttu námskeiðið þar sem markmiðið var að hafa gaman og bæta sig í ýmsum atriðum.
Góðir gestir komu í heimsókn þar sem iðkendur fengu tækifæri að spreyta sig í 1 á 1 við eldri iðkendur og leikmenn meistaraflokks félagsins á borð við Keyshawn Woods.
Í lok námskeiðsins fengu allir iðkendur lítið páska egg fyrir að hafa tekið vel á því alla vikuna.
Áfram Valur!


















