Páskanámskeið Vals í handbolta

Dagana 30.mars til 1.apríl fór fram Páskanámskeið Vals í handbolta fyrir iðkendur á aldrinum 6 til 12 ára.

Anton Rúnarsson, yfirþjálfari deildarinnar, var með umsjón á námskeiðinu ásamt góðum gestum. Um 50 iðkendur sóttu námskeiðið þar sem markmiðið var að hafa gaman og bæta sig í ýmsum atriðum.

Góðir gestir komu í heimsókn, þar á meðal Óskar Bjarni, Björgvin Páll, Arnór Snær, Laufey Helga, Arna Karítas, Guðrún Hekla, Logi Finns, Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi.

Í lok námskeiðsins fengu allir iðkendur lítið páska egg fyrir að hafa tekið vel á því alla vikuna.

Áfram Valur!