VALUR TV FER Í LOFTIÐ!

Valur hefur nú sett af stað nýja og glæsilega efnisveitu - Valur TV.

Markmiðið með Valur TV er að færa stuðningsmenn enn nær félaginu með fjölbreyttu og vönduðu myndefni frá öllu starfi Vals. Þar geta stuðningsmenn fylgst með liðunum okkar á alveg nýjan hátt og fengið aðgang að efni sem fer dýpra inn í starfið, fólkið og stemninguna í kringum félagið.

Á Valur TV verður meðal annars hægt að sjá:

  • Efni eftir leiki í fótbolta, handbolta og körfubolta
  • Efni bakvið tjöldin
  • Viðtöl við leikmenn og þjálfara
  • Þætti, skemmtiefni og sögur úr starfi Vals
  • Efni frá yngri flokka starfi félagsins
  • Samantektir, heimildarþætti og sérstaka viðburði

Valur TV verður lifandi miðill sem mun vaxa jafnt og þétt á næstu mánuðum með nýju og spennandi efni frá öllum deildum félagsins.

Við hvetjum alla stuðningsmenn Vals til að skrá sig inn og fylgjast með frá fyrsta degi.

Horfið á Valur TV hér!
Einnig er hægt að nálgast Valur TV undir "TV" á valur.is

Áfram Valur ❤️