Meistaraflokkur kvenna Íslandsmeistarar 2026!

Í gærkvöldi fór fram fjórði leikur Vals og ÍBV í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn 2026.

Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum og var leikurinn sá fjórði í einvíginu. Valskonur fóru inn í leikinn með tvo sigra úr þremur leikjum og þurftu þær því einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn.

Þær byrjuðu leikinn vel og náðu fjögra marka forystu á heimakonur snemma leiks. Hins vegar tókst heimakonum að snúa stöðunni sér í vil þegar leið á fyrri hálfleik og var staðan í hálfleik 16-15, ÍBV í vil.

Í seinni hálfleik komu Valsarar inn með krafti og enduðu þær á því að sigra leikinn 26-30 og voru krýndar Íslandsmeistarar 2026. Liðið hefur því hreinsað upp öll gullverðlaun sem keppt var um á tímabilinu hér innanlands, þ.e. Meistarar meistaranna, Bikarmeistarar, Deildarmeistarar og nú Íslandsmeistarar.

Lovísa Thompson var valin leikmaður úrslitaeinvígsins.

Innilega til hamingju stelpur!

Áfram Valur! Áfram hærra!