Íslandsmeistarar 8.flokkur kvenna

Sunnudaginn 16.maí síðastliðinn urðu stelpurnar okkar í 8.flokki kvenna Íslandsmeistarar eftir glæsilegan sigur gegn KR í úrslitaleik í A riðli í Kennaraháskólanum.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu, sterkri vörn og var nokkuð jafn fram í seinni hálfleik en þá gáfu okkar stelpur í og stigu aldrei á bremsuna og niðurstaðan 61-43 sigur og titillinn í höfn.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill þessa árgangs og sá þriðji í röðinni hjá yngri kvennaflokkum Vals en stelpurnar sem eru árinu eldri hafa tvívegis náð í þann stóra.
Stelpurnar spiluðu rosalega vel saman í þessum leik, voru öruggar með boltann og settu sterk skrín sem sköpuðu margar opnar körfur.
Einnig spiluðu þær gríðarlega harða vörn sem erfitt var að brjótast í gegnum og skoruðu fjölmargar körfur eftir sóknarfráköst.
Þjálfarar liðsins eru Ólöf og Bjarni og við óskum þeim til hamingju með frábært starf fyrir félagið!
Til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn!