Aðalfundur Vals haldinn 28. maí – breytingar á stjórn félagsins

Aðalfundur Vals fór fram þann 28. maí í hátíðarsal félagsins
að Hlíðarenda. Fundurinn var vel sóttur og fór fram með hátíðlegum
hætti líkt og venja er hjá félaginu. Á fundinum urðu nokkrar
breytingar á stjórn félagsins og deildarstjórnum.
Hafrún Kristjánsdóttir lætur af störfum sem
formaður
Hafrún Kristjánsdóttir lætur af störfum sem formaður Vals
eftir eitt ár í embætti. Ákvörðun hennar kemur til vegna aukinna
verkefna í starfi, en Hafrún er prófessor við Háskólann í Reykjavík
og hefur meðal annars unnið að mikilvægu verkefni sem styður
foreldra barna sem glíma við kvíða.
Verkefnið hlaut nýverið alþjóðlegan þróunarstyrk sem kallar á
aukið umfang og veru erlendis næstu misseri. Þrátt fyrir að stíga
til hliðar sem formaður mun Hafrún áfram verða félaginu innan
handar.
Valur þakkar Hafrúnu innilega fyrir hennar mikilvæga framlag
og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Arnar Þór Sævarsson kjörinn nýr
formaður
Nýr formaður Vals er Arnar Þór Sævarsson. Arnar starfar sem
framkvæmdastjóri Samtaka íslenskra sveitarfélaga og hefur víðtæka
stjórnunarreynslu, meðal annars sem bæjarstjóri á Blönduósi og
síðar sem aðstoðarmaður ráðherra.
Arnar hefur tengst Val í meira en tvo áratugi. Eiginkona hans,
Gerður Beta Jóhannsdóttir, lék um árabil með meistaraflokki kvenna
í handknattleik og átti stóran þátt í velgengni liðsins. Þá eiga
þau þrjú börn, þar af son sem leikur atvinnumennsku í handknattleik
í Þýskalandi og tvær dætur sem æfa handknattleik hjá Val.
Einnig urðu breytingar á deildarstjórnum félagsins og má sjá
yfirlit yfir nýjar stjórnir hér:
Valur býður Arnar Þór hjartanlega velkominn til starfa sem
formann félagsins, ásamt öllum þeim stjórnarmönnum og -konum sem
taka nú sæti í stjórnum félagsins.
Breytingar á stjórnum deilda
Nokkrar breytingar urðu á stjórnum deilda félagsins á
aðalfundi.
Björn Steinar Jónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi
stjórnarstarfa og hefur Styrmir Þór Bragason tekið við sem formaður
Knattspyrnudeildar. Eva Gunnlaugsdóttir stígur einnig til hliðar
sem formaður Handknattleiksdeildar og tekur Fannar Örn Þorbjörnsson
við formennsku deildarinnar.
Svali Björgvinsson lætur af störfum eftir fjölmörg ár sem
formaður Körfuknattleiksdeildar. Deildin vinnur nú að því að finna
nýjan formann til að leiða starf hennar áfram.
Dagný Rut Gísladóttir heldur áfram sem formaður Barna- og
unglingasviðs.
Nánari upplýsingar um skipan stjórna deilda má finna á
heimasíðu Knattspyrnufélagið Valur.
Við viljum færa öllu því stjórnarfólki sem hefur lokið störfum
okkar bestu þakkir fyrir óeigingjarnt framlag sitt í þágu
félagsins. Starfsemi félagsins byggir að stórum hluta á eldmóði,
tíma og fagmennsku þeirra sem gefa af sér til sjálfboðastarfa.
Framlag þeirra hefur verið ómetanlegt og kunnum við þeim innilega
þakkir fyrir þeirra mikilvæga starf í þágu Vals.













