Rafn Haraldur Rafnsson ráðinn yfirþjálfari yngri flokka hjá Val

Knattspyrnudeild Vals hefur ráðið Rafn Harald Rafnsson í starf yfirþjálfara yngri flokka félagsins og mun hann taka til starfa að fullu þann 15. ágúst næstkomandi.

Rafn hefur víðtæka reynslu af þjálfun, kennslu og þróun íþróttafólks. Hann er íþróttafræðingur með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og stundar doktorsnám þar sem rannsóknir hans snúa meðal annars að námi, hreyfingu og frammistöðu. Samhliða því hefur hann starfað um árabil við þjálfun barna og ungmenna og lagt sérstaka áherslu á að byggja upp jákvætt og árangursríkt námsumhverfi fyrir unga íþróttamenn.

Sem yfirþjálfari mun Rafn leiða faglega þróun yngri flokka félagsins með það að markmiði að styrkja rauða þráðinn í þjálfun, efla þjálfarateymið og skapa umhverfi þar sem leikmenn geta dafnað bæði innan sem utan vallar.

"Ég hlakka mikið til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu hjá Val. Markmiðið er að skapa metnaðarfullt en um leið jákvætt námsumhverfi þar sem hver leikmaður fær tækifæri til að vaxa á sínum forsendum. Með skýrri leikmannaleið, öflugri þjálfaramenningu og góðu samstarfi við leikmenn og foreldra tel ég að við getum byggt enn sterkari grunn fyrir framtíð félagsins," segir Rafn.

Helstu áherslur Rafns munu meðal annars felast í:

  • Skýrri kennsluskrásem tekur mið af aldri og þroska leikmanna.

  • Gæðastarfi á æfingumþar sem nám, leikgleði og áskoranir fara saman.

  • Samræmdri leikmannaleiðfrá yngstu flokkum upp í meistaraflokk.

  • Faglegum stuðningiog þróun þjálfara félagsins.

"Við erum afar ánægð með að fá Rafn til liðs við okkur. Hann sameinar sterkan fræðilegan grunn, mikla reynslu af þjálfun og skýra sýn á hvernig byggja má upp öflugt afreks-, barna- og unglingastarf. Við teljum að hann verði mikilvægt afl í áframhaldandi þróun knattspyrnustarfs Vals," segir formaður barna- og unglingasviðs Vals.