Símamótið 2026

Símamótið fór fram dagana 9.-12.júlí þar sem við vorum með fulltrúa í 5., 6., 7. og 8.flokk, og stóðu þær sig með príði. 

5.flokkur kvenna

5. flokkur kvenna fór á Símamótið síðustu helgi með 3 lið. Undirbúningur var mikill og mest áhersla var á liðsheild og stemningu. Liðin öll stóðu sig vel inn á velli en öll hraðmót eru mikil félagsleg þjálfun og þar stóðu stelpurnar sig sérstaklega vel. C liðið endaði í 3 sæti í sínum styrkleika, B liðið endaði í 2 sæti eftir hörku úrslitaleik við Fylki. Bæði C og B liðin unnu sig upp um styrkleika og sýndu mikla takta. A liðið vann Símamótið en þær tókust á við Breiðablik í úrslitaleik á Kópavogsvelli. Við höfum verið að vinna mikið í andlegri þjálfun og má þar nefna markmiða setningu, Hugrekki í hegðun og styrkleikavinnustofu. Þessi vinna með hausinn skilaði sé vel í úrslitaleiknum þar sem við lentum 0-1 undir en gáfumst ekki upp. Gerðum það sem við erum góðar í spila bolta niðri og hratt. Leikurinn endaði 2-1 fyrir Val. 5 leikmenn í A liði eru á yngra ári sem er líka mikið afrek. Þó svo að úrslitin hafi verið frábær er samt samveran það mikilvægasta. Framtíðin er björt á Hlíðarenda. 

 

6.flokkur kvenna

6.flokkur kvenna fór með 5 lið á símamótið í ár og stóðu sig svo ótrúlega vel, áherslur þeirra á mótinu var að hafa gaman, spila fótbolta og vinna sem lið. Markmiðum okkar var náð og stóðu stelpurnar sig með prýði með einföldu. Þær eru búnar að vinna hörðum höndum í undirbúning fyrir þetta mót, æfa tækni, samspil og búa til sterka liðsheild og leikgleði. 

 

7.flokkur kvenna

7. flokkur Vals fór með fjögur lið á Símamótið. Allt voru þetta stelpur sem hafa æft á fullum krafti í allan vetur og meiri hlutinn á yngra ári. Helgin hófst með hátíð í Valsheimilinu á fimmtudag þar sem stelpurnar stilltu saman strengi sína, klæddu sig, fléttuðu og máluðu í Valslitum. Leiknir voru þrír leikir bæði á föstudegi og laugardegi, og loks tveir á sunnudegi. Í lok leikdags styrktu stelpurnar vinaböndin enn frekar með því að fara t.d. saman á Valsleik eða sund. Það skiptust að sjálfsögðu á skin og skúrir á mótinu hjá okkar dömum en óhætt er að segja að þær allar hafi sýnt frábærar takta og lagt sig allar fram. Allar voru þær þreyttar en sælar í lok dags. Foreldrastemmningin var einstök og það er ljóst að með þessum stuðningi er von á góðu á næstu árum hjá Val.

 

8.flokkur kvenna

Litlu Vals krúttin í 8.flokk kvenna fóru á Litla Símamótið. Við vorum með 6 lið á mótinu en 64 stelpur æfa í 8. Flokk kvenna. Margar eru búnar að fara á mörg mót og þess vegna vanar en sumar eru að vinna í að þora að vera á vell og sparka í bolta. Hugrekkið kemur smátt og smátt. Gleðin var mikil og stelpurnar voru spenntar í marga daga á undan. Liðunum gekk mjög vel og var gaman að sjá framfarir og vöxtinn hjá leikmönnum. Óhætt er að segja að litlu krúttin hafi krúttað yfir sig enda fátt fallegra.

 

Myndir af mótinu:

F 064861c -6352-44d 3-bdb 5-684c 47c 89069

0ccd 7a 17-dcc 4-4f 3a -b 5fe -b 8dd 9abc 219a


529d 2da 0-1d 32-4783-85e 5-637194047d 2b

828300a 4-b 429-4aef -9a 7c -7c 37d 5e 66ad2

 

038fddf 7-ba 6b -4374-a 151-a 0e 34fd 2e 8b7

11662b 29-ef 89-4920-8ea 4-85a 17894ec 3f

D 177d 185-3bf 5-4581-b 9c 9-4c 879080ed 0b

5a 8a 0afa -ce 56-45cb -a 0bc -815a 2723baac

841495ad -43fe -4cd 6-8456-9bc 3d 3510797

1ba 6d 0f 9-b 2bf -4992-91eb -202cbcd 48986

 

A 7e 9d 533-6b 66-4299-87c 4-4b 8afec 44fd6

B 96b 8ddd -aa 25-48e 7-8370-bcaeddf 9a 61d

3fdc 0231-5e 55-4d 8e -8c 62-b 5f 23cd 1ae 1c

C 349b 167-2246-4f 77-8c 50-74e 78ec 726e3

68abb 078-2c 75-4aed -bd 24-f 1767819d 279

064bf 877-ccf 9-424f -97a 0-a 4d 59113636f