Valsakademían hefst í ágúst

Dagana 10.-14.ágúst mun Valsakademían fara af stað í þriðja sinn. Allar deildir félagsins, handbolti, fótbolti og körfubolti, verða með Valsakademíuna og ríkir mikill spenningur í lofti.
Valsakademían fór af stað árið 2024, þá tóku tæplega 110 metnaðarfullir knattspyrnuiðkendur þátt. Í fyrra, árið 2025, bættust handboltinn og körfuboltinn í hópinn og tóku rúmlega 200 leikmenn þátt. Í handboltanum fengum við góða gesti á borð við Arnar Péturs, Snorra Stein, Óla Stef og fleiri. Í körfuboltanum mættu Finnur Freyr, Kristófer Acox, Aron Frank og fleiri góðir gestir í heimsókn.
Valsakademían er opin öllum iðkendum á aldrinum 11-16 ára (f. 2010-2015). Á námskeiðinu verður boðið upp á æfingar, fyrirlestra, hádegismat og einstaklings myndatöku.
Markmið Valsakademíunnar er að skapa nokkurs konar upphaf yngri íþróttafólksins okkar og gefur þeim tækifæri að æfa eins og atvinnumenn undir leiðsögn okkar besta íþróttafólks. Í ár fáum við tll okkar fjölda gesta á æfingar og til að flytja fyrirlestra, þeir eru á borð við Matthías Guðmunds, Bjarna Mark, Gústa Jó, Finn Frey, Óskar Bjarna og fleiri. Á fyrirlestrunum verður farið víða við; við ræðum mikilvægi markmiðasetningu, andlega líðan og endurheimt, svo eitthvað sé nefnt.
Við hlökkum til að sjá sem flesta í Valsakademíunni - Áfram Valur!
Skráning í Valsakademíu handboltans fer fram hér.
Skráning í Valsakademíu fótboltans fer fram hér.
Skráning í Valsakademíu körfuboltans fer fram hér.














