Sumarnámskeið Vals

Föstudaginn 17. júlí rann síðasti dagur sumarnámskeiða Vals sumarið 2026 upp og þar með lauk enn einu viðburðaríku og skemmtilegu sumri hjá félaginu.

Alls voru haldin 18 sumarnámskeið á vegum Vals á tímabilinu þar sem rúmlega 270 börn á aldrinum 6-10 ára tóku þátt. Námskeiðin voru vel sótt og einkenndust af mikilli hreyfingu, gleði og góðum félagsskap þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að efla færni sína, eignast nýja vini og njóta sumarfrísins í skemmtilegu og uppbyggilegu umhverfi.

Á morgnana var boðið upp á fjölbreytt námskeið í handbolta, fótbolta og körfubolta þar sem áhersla var lögð á leik, tækniþjálfun og hreyfigleði. Eftir hádegi tóku við vinsælu Sumarbúðirnar í Borg þar sem fjölbreytt dagskrá, útivera, leikir og skemmtileg verkefni settu svip sinn á daginn.

Við hjá Val viljum þakka öllum iðkendunum fyrir frábæra þátttöku, foreldrum og forráðamönnum fyrir traustið og öllum þjálfurum og starfsfólki fyrir þeirra ómetanlega framlag. Án þeirra hefði ekki verið hægt að skapa það góða og jákvæða umhverfi sem einkenndi sumarnámskeiðin í sumar.

Við óskum öllum gleðilegs sumars áfram og hlökkum til að sjá sem flesta aftur á æfingum og viðburðum Vals á komandi tímabili.

 4fbb 5ace -116d -46ad -9c 04-60515f 308423