Framlengt samstarf við Abler

Knattspyrnufélagið Valur og Abler hafa framlengt samstarf sitt og halda áfram að vinna saman að því að einfalda samskipti og utanumhald í öflugu barna- og unglingastarfi félagsins.
Abler hefur á undanförnum árum verið mikilvægur hluti af daglegum rekstri Vals, þar sem iðkendur, foreldrar, þjálfarar og starfsfólk nýta kerfið til skráninga, samskipta og upplýsingamiðlunar.
Við hlökkum til að halda áfram þessu góða samstarfi með Abler og þróa enn frekar þá þjónustu sem styður við starfsemi félagsins og bætir upplifun allra sem koma að starfi Vals.














