Valur -Mors Thy í EHF European League

Leikurinn var hraður og skemmtilegur og skiptust liðin á forystu í
byrjun leiks. Þegar líða fór á leikinn náðu Valsarar forystu og
leiddu í hálfleik með fjórum mörkum. Staðan í leikhlé var
19-15.
Valsmenn komu svo klárir í seinni hálfleiki og tóku hægt og rólega
öll völd á vellinum. Strákarnir voru agaðir, þéttir í vörn og
spiluðu frábæran sóknarleik sem skilaði liðinu góðri forystu sem
þeir misstu aldrei af hendi. Mestur varð munurinn ellefu mörk og
urðu lokatölur 39 - 28.
Björgvin Páll stóð á milli stanganna í kvöld og varði 8 skot í
fyrri hálfleik og 13 í þeim seinni, alls 21 skot. Þar af voru 3
víti og ein sending sem gaf mark. Markaskorar kvöldsins voru: Arnór
Snær með 10/2 mörk, Gunnar Róbertsson með 8/2 mörk, Bjarni Í
Selvindi með 6 mörk, Allan Norðberg með 4 mörk, Tjörvi Týr með 4
mörk, Andri Finnsson, með 3 mörk, Jón Ásgeir með 3 mörk og Logi
Finnsson með 1 mark.
Strákarnir voru frábærir í kvöld og unnu virkilega sannfærandi
sigur á heimavelli í fyrsta leik í EHF European League.
Stemningin var einnig frábær N1 höllinni og studdu áhorfendur vel
við bakið á liðinu og létu vel í sér heyra.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var virkilega ánægður með
strákana, karakterinn í liðinu og frammistöðu kvöldsins. Þá fannst
honum varnarleikurinn góður og markvarslan sömuleiðis góð auk þess
sem tempóið í liðinu var frábært allan leikinn og liðið fékk því
ódýr og góð mörk úr bæði uppstilltum sóknarleik sem og
hraðaupphlaupum.
Næsti leikur Vals verður á útivell eftir viku, þriðjudaginn 6.
október þegar liðið fer til Slóveníu og spilar á móti RD LL Grosist
Slovan.













