Breytingar á skipulagi yfirþjálfunar yngri flokka Vals í fótbolta!

Það gleður okkur að tilkynna breytingar á skipulagi yfirþjálfunar yngri flokka í knattspyrnu. Barna- og unglingasvið Vals hefur ráðið Albert Ásvaldsson í starf yfirþjálfara 2.-4.flokks karla og kvenna. Rafn Haraldur mun áfram gegna starfi yfirþjálfara með áherslu á 5.-8.flokki karla og kvenna. Þeir munu vinna náið saman að áframhaldandi uppbyggingu og þróun yngri flokka félagsins. 

Albert býr yfir mikilli reynslu úr knattspyrnunni, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék í efstu deild með Fram aðeins 16 ára gamall ásamt því að spila með yngri landsliðum Íslands. Síðar lék hann með Aftureldingu og var fyrirliði meistaraflokks félagsins. 

Sem þjálfari hefur Albert komið að uppbyggingu og þróun leikmanna í 3.-6. flokki hjá Aftureldingu en síðast liðið sumar lá leið hans að Hlíðarenda þar sem að hann sinnti þjálfun yngri flokka Vals. Hann þekkir því starfið að Hlíðarenda vel og kemur inn í nýtt hlutverk með mikla reynslu og skýra sýn á faglegt starf og leikmannaþróun. 

"Ég er afar ánægður með að fá Albert til liðs við okkur hjá Val. Hann býr yfir mikilli þekkingu, metnaði og reynslu sem mun nýtast félaginu vel. Hann hefur skýra sýn á þjálfun og uppbyggingu ungra knattspyrnumanna og kvenna og leggur ríka áherslu á fagleg vinnubrögð. Eldri iðkendur okkar munu njóta sérstaklega góðs af honum þar sem hans reynsla mun nýtast allra best," segir Rafn Haralds Rafnsson. 

Við bjóðum Albert og Rafn hjartanlega velkomna í ný hlutverk og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar knattspyrnustarfsins að Hlíðarenda! 

Áfram Valur! 

Albert Og Rafn

Albert

 

Rafn1