Valur – MOL Tatabanya KC í EHF European League - ANNAR SIGUR Á HEIMAVELLI

Leikurinn við ungverska liðið MOL Tatabanya CK í EHF European League í kvöld var hraður og skemmtilegur og nokkuð jafn í upphafi leiks. Valsarar voru alltaf skrefinu á undan en Ungverjarnir náðu að halda sér inn í leiknum og var jafnt í hálfleik, 16 - 16.
Valsmenn komu vel gíraðir í seinni hálfleik og náðu hægt og
rólega yfirhöndinni í leiknum án þess þó að skilja Tatabanya langt
á eftir sér. Ungverjarnir héldu stöðugt í við þá og reyndu hvað
þeir gátu að jafna leikinn. Strákarnir voru hins vegar
agaðir, skipulagðir, skynsamir og þéttir í vörn svo þeir misstu
aldrei forystuna. Þeir náðu svo að lokum að landa góðum og
sanngjörnum fjögurra marka sigri, 38 - 34.
Björgvin Páll stóð vaktina í markinu í kvöld og varði 12 skot og
skoraði að auki eitt mark!
Markaskorarar kvöldsins voru: Arnór Snær og Gunnar Róberts með 9 mörk, Bjarni Í Selvindi með 7 mörk, Andri Finns með 6 mörk, Tjörvi Týr með 3 mörk, Daníel Montoro með 2 mörk og Jón Ásgeir með 1 mark.
Strákarnir spiluðu virkilega vel í kvöld og unnu sinn annan sigur í EHF European League. Þeir eru þar með komnir með 4 stig í sínum riðli og sitja í öðru sæti. Stemningin var einnig virkilega góð í N1 höllinni og var gaman að sjá hve margir lögðu leið sína á völlinn til að hvetja strákana áfra.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var ánægður með strákana og hrósaði þeim fyrir vinnusemina, baráttuna og leikgleðina sem einkenndi liðið í kvöld.
Nú kemur pása í Evrópukeppninni til 17. nóvember en þá munu strákanir fara til Ungverjalands og mæta aftur MOL Tatabanya KC á þeirra heimavelli.
Meira um það síðar!


















