Fjórar ungar og efnilegar stúlkur skrifa undir nýja samninga.

Fjórar ungar og efnilegar stúlkur hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við handknattleiksdeild Vals. Þetta eru þær Bryndís Elín Whöler, Morgan Marie Þorkelsdóttir, Guðrún Lilja Gunnarsdóttir og Vigdís Birna Þorsteinsdóttir. Greinilegt að framtíðin er björt á Hlíðarenda og verður gaman að sjá þessar stelpur undir leiðsögn hinna reyndu þjálfara Stefáns Arnarssonar og Óskars Bjarna Óskarssonar.