Sumarbúðir í borg | 2024

Skráning er hafin HÉR

 

Frá 12:30 og 16:00 mánudaga - föstudaga.

 

Hinar margrómuðu  Sumarbúðir í Borg verða á sínumstað  þettasumarið  en um er ræða  sumar leikjanámskeið  sem  býður  upp á fjölbreytta  dagskrá  fyrir  börn á aldrinum 6-10  ára  eftir  hádegi á virkum  dögum. Á dagskrá  verður  meðal  annars:  


  • Vettvangsferðirogratleikir  

  • Fyrirtækjaheimsóknir  

  • Strand- ogfjöruferðir  

  • Safnaferðir  

  • Bókasafnsferðir  

  • Pylsupartí í lokhversnámskeiðs   

 

Lögð er áhersla á fjölbreytta  íþróttaiðkun  þar  sem  unnið er með  skyn- og  hreyfiþroska  barna í gegnum  fjölbreytta  leiki.  

Helsta  markmið  námskeiðs er að  veita  börnunum  fjölbreytt  íþrótta uppeldi  og  byggja  upp  hjá  þeim  heilbrigðar  og  hollar  lífsvenjur í öruggu, jákvæðu  og  skemmtilegu  umhverfi.  


Nánari dagskrá væntanleg

 

  • Hægt að vera í boltaskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi. 
  • Morgungæsla/dagskrá í boltaskólum frá 8:00og þar til námskeið/æfingar hefjast (athugið aðeins fyrstu 6 vikurnar)
  • Gæsla eftir námskeið 16:00-17:00 (athugið bara fyrstu 6 vikurnar)
  • Gæsla í hádegi milli klukkan 12:00-12:30.
  • 10% systkinaafsláttur veittur af námskeiðum innan sömu deildar (Reiknast af seinni kaupum)
  • 10% fjölþjónustu afsláttur er veittur þegar fleirri en eitt námskeið eru versluð á sama tíma (Reiknast af meðaltalsgjaldi og gildir ekki á milli deilda og/eða einstaklinga)

 

Dagsetningar Sumarbúða í Borg:

3 vikur í júní:

10-14. júní

18-21. júní *4 dagar

24-28. júní

3 vikur í júlí:

1.-5. júlí

8.-12. júlí

15.-19. Júlí

 

Fleiri gagnlegar upplýsingar:

  • Valur áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarksþátttaka.
  • Valur áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
  • Valur áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
  • Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (eitt nesti á hverju 1/2 dags námskeiði) 
  • Samloku-, drykkjar,- og ávaxta kort verða til sölu á Hlíðarenda/Abler.

 

Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir íþróttafulltrúi Vals,

louisa@valur.is