Félagsgjöld Vals

Kæru Valsarar!

Athugið að félagsgjöld Vals sem hafa verið send út eru VALKVÆÐ og ekki verður farið í neinar innheimtuaðgerðir. Það koma því miður sjálfkrafa skilaboð frá Abler sem eru ekki rétt og þið getið horft fram hjá. Við biðjumst afsökunnar á þessu en getum því miður ekki breytt þessum skilaboðum frá Abler. Skilaboðin má sjá hér fyrir neðan:


Valur - Félagsgjöld
Þjónusta: Félagsgjöld Vals 2025
Meðlimur: xxxx
Hæ xxxx
Nafn hefur verið skráð/ur í Félagsgjöld Vals 2025.
Vinsamlegast gangið frá greiðslu sem fyrst til að forðast frekari innheimtuaðgerðir.

Hægt er að ganga frá greiðslu í Abler appinu eða með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Ganga frá greiðslu:
Ef þú þarft aðstoð við greiðslu, sjá þessa hjálpargrein. Fyrir athugasemdir, vinsamlegast hafðu samband við valur@valur.is.

Kær kveðja,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir