Mannflóran fræðir iðkendur og þjálfara

Þann 12.maí  kom Chanel Björk, stofnandi  og  umsjónarmaður  Mannflórunnar, í heimsókn á Hlíðarenda  og  fræddi  yngri  iðkendur  félagsins  um fjölmenningu  o fordóma  í íslensku  samfélagi. 

Markmið  fræðslunnar var að  efla  meðvitund, gagnrýna  hugsun  og  umburðarlyndi  meðal  iðkenda, með  það  að  leiðarljósi  að  stuðla  að  jöfnu  og  fjölbreyttu  samfélagi. 

Iðkendum í öllum  deildum var dreift  niður á tvær  fræðslur, eftir  aldri, og var eftirsóknin  góð. 

Í framhaldi  fengu  þjálfarar  félagsins  fræðslu  varðandi  sama  málefni.      

Nánar um Mannflóruna: https://www.mannfloran.is/um-okkur