Þrír yngri flokkar Íslandsmeistarar í handbolta

Sunnudaginn 18.maí fór fram úrslitadagur 3. og
4.flokks í handbolta.
4.flokkur kvenna mætti HK í úrslitum og vann
tveggja marka sigur 22-20. Laufey Helga Óskarsdóttir var valin
maður leiksins.
3.flokkur kvenna mætti ÍBV í úrslitum og báru sigur
að bítum. Ásrún Inga Arnarsdóttir var valin maður leiksins.
3.flokkur karla mætti Gróttu í úrslitum þar sem
framlengingu þurfti til að skilja liðin af. Valur endaði á því að
vinna tveggja marka sigur. Gunnar Róbertsson var valinn maður
leiksins.
4.flokkur kvk Íslandsmeistarar 2025!
3.flokkur kvk Íslandsmeistarar 2025!
3.flokkur kk Íslandsmeistarar 2025!
Öll
liðin unnu og stóðu uppi sem Íslandsmeistarar.
Við
viljum nýta tækifærið og óska leikmönnum, þjálfurum og öllum
innilega til hamingju með frábæran árangur!
Framtíðin er svo sannarlega björt á
Hlíðarenda!