Íþróttamaður Vals 2025

Á gamlársdag fer fram venju samkvæmt, val á Íþróttamanni Vals. Þetta verður í 33. skipti sem að valið fer fram og hvetjum við Valsara til að fjölmenna að Hlíðarenda og fá sér kaffi og kökubita. 

Val á íþróttamanni Vals skipar veigamikinn sess í starfi félagsins og er gaman að sjá hversu margir leggja leið sína að Hlíðarenda til að taka þátt í viðburðinum. 

Dagskráin hefst stundvíslega kl. 12:00 í veislusölum félagsins og hlökkum við til að sjá sem flesta Valsara, unga sem aldna.


Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Gunnar Óskarsson íþróttamann Vals 2024.

1492603