Hallgrímur Heimisson hættir sem yfirþjálfari yngri flokka

Eftir tvö ár í starfi hefur Hallgrímur ákveðið að
einbeita sér alfarið að þjálfun að loknu vorinu, hann mun þó vera
áfram í félaginu meðal annars í teymi Meistaraflokks kvenna. Við
leitum því að nýjum yfirþjálfara í knattspyrnu frá og með
vorinu.
Við
viljum þakka Halla fyrir sitt frábæra starf en hann hefur verið
drifkrafturinn í mörgum verkefnum sem hafa fests í sessi hjá Val
eins og Akademían, sem við erum gríðarlega stolt af.
"Þetta hefur verið lærdómsríkt umhverfi sem hefur fyrst og fremst
gefið mér ómetanlega reynslu.
Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér var
sýnt svona ungum að fá að leiða áfram eitt flottasta íþróttafélag
landsins og vill ég þakka félaginu fyrir það traust sem mér var
gefið.
Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er fyrst og fremst
sú að ástríða mín liggur í þjálfun. Ég brenn fyrir því starfi og
stefni á að ná alla leið á því sviði.
Ég
hef kynnst frábæru fólki í starfi mínu sem yfirþjálfari og fyrir
það er ég einnig þakklátur.
Valur er vettvangur fyrir alla. Áherslan er á að leikmenn fái
tækifæri við hæfi, að starfið sé öflug forvörn og að við búum til
Valsara - hvort sem það er sem leikmenn, dómarar, sjálfboðaliðar,
styrktaraðilar eða stuðningsmenn.
Ég
kveð starfið með stolti, og trúi á bjarta framtíð á
Hlíðarenda.
Takk
fyrir mig - og áfram Valur
"














