Íslandsmeistarar í 3.flokki karla og kvenna

Sunnudaginn 16.maí fóru fram úrslitaleikir um
Íslandsmeistaratitilinn hjá 3.flokki karla og kvenna.
3.flokkur kvenna Íslandsmeistari
3.flokkur kvenna hjá Val varð um helgina Íslandsmeistari eftir að
hafa unnið sigur á sterku liði HK í algjörum naglbít.
HK-stelpur byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu hvert markið
á fætur öðru. Eftir um tíu mínútna leik var staðan 6-10 HK í vil.
Þá breyttu Vals-stelpur um vörn, þéttu raðirnar og skömmu síðar var
staðan orðin jöfn 11-11. Eftir það var fyrri hálfleikurinn hnífjafn
en HK þó alltaf skrefinu á undan. Hálfleiksstaðan var 21-23 HK í
vil.
Síðari hálfleikur þróaðist að mörgu leiti líkt og
sá fyrri. Eftir tíu mínútur í síðari hálfleik voru HK-stelpur aftur
komnar með fjögurra marka forystu 25-29. Okkar stelpur voru alls
ekki á því að gefast upp og náðu tíu mínútum síðar að jafna leikinn
í 30-30. Þegar þrjár mínútur lifðu leiks kom svo Laufey Helga
Óskarsdóttir Val í yfir í fyrsta skipti í leiknum 34-33. HK jafnaði
leikinn í næstu sókn en Hekla Hrund Andradóttir skoraði sigurmarkið
þegar rétt tæp mínúta var eftir af leiknum. Lokatölur 35-34 og
Valur því Íslandsmeistari í 3.flokki kvenna. Frábær leikur þar sem
stelpurnar náðu af harðfylgi að klára leikinn eftir að hafa verið
undir nánast allan tímann.
Laufey Helga Óskarsdóttir var mjög svo verðskuldað valin besti
leikmaður úrslitaleiksins.
Frábær vetur hjá 3.flokki kvenna. Urðu bæði deildar- og
Íslandsmeistarar og enduðu í 2.sæti í Bikarkeppni HSÍ.
Mörk Vals:
Laufey Helga Óskarsdóttir 14, Guðrún Hekla
Traustadóttir 8, Lena Líf Orradóttir 5, Hekla Hrund Andradóttir 3,
Arna Karítas Eiríksdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 2, Alba Mist
Gunnarsdóttir 1.
Varin skot:
Oddný Mínervudóttir 9.
3.flokkur karla Íslandsmeistari
Valsstrákarnir í 3.flokki spiluðu til úrslita um
Íslandsmeistaratitilinn gegn ÍBV.
Í
átta liða úrslitum höfðu þeir lagt FH af velli 37-33 og í
undanúrslitum unnu þeir sterkt lið Aftureldingar, 41-38.
Fyrir úrslitaleikinn gegn íBV höfðu Valsstelpurnar tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn með sigri að HK og því ljóst að með sigri
væri Valur deildar- og Íslandsmeistari í meistaraflokki karla og
kvenna sem og 3.flokki karla og kvenna.
Strax í byrjun leiks var ljóst að leikmenn beggja liða ætluðu að
selja sig dýrt í leiknum og var hart barist frá fyrstu mínútu.
Liðin skiptust á skora og var munurinn aldrei meira en tvö mörk, en
Valur leiddi í hálfleik, 14-13.
Sama
barátta var til staðar í seinni hálfleik en Valsstrákarnir þó
skrefi á undan og leiddu með 1-3 mörkum. Eyjamenn jöfnuðu leikinn,
25-25 þegar um 10 mínútur voru til leiksloka en þá komu fjögur mörk
í röð hjá Val sem breytti stöðunni í 29-25. Þennan mun náði ÍBV
ekki að brúa og Valsstrákarnir sigldu sætum sigri í höfn,
33-27.
Mörk
Vals: Daníel Montoro 7, Logi Finnsson 6, Gunnar Róbertsson 5, Kári
Steinn Guðmunsson 5, Dagur Leó Fannarsson 4, Bjarki Snorrason 4,
Hrafn Þorbjarnarson 2.
Anton Máni Francisco Heldersson varði 11 skot og Þórhallur Árni
Höskuldsson.
Logi
Finnsson var valinn maður leiksins.
Framtíðin er björt að Hlíðarenda!

















