Valsblaðið 2022 er komið út

Valsblaðið árið 2022 er komið út - Fyrsta Valsblaðið kom út í janúar 1939 en ritstjóri þess og ábyrgðarmaður var Sigurður Ólafsson. Hann og Frímann Helgason sáu um greinaskrif og báru hitann og þungan af útgáfunni árum saman.

Valsblaðið er ómetanleg heimild um starfsemi félagsins og gefur innsýn í helstu málefni og áherslur Vals á hverjum tíma, sigra utan vallar sem innan og tíðarandann.

Af ýmsum ástæðum var útgáfa blaðsins stopul eftir 1940 en það var endurvakið með krafti 1958. Frá árinu 1983 hefur Valsblaðið komið út árlega og nú er 74. tölublaðið komið út undir styrkri ritstjórn Guðna Olgeirssonar en hann hefur ritstýrt Valsblaðinu í tæpa tvo áratugi eða frá árinu 2003.

Smelltu hér til að skoða Valsblaðið 2022

Hægt er að nálgast blaðið milli hátíða en opnunartíma Valsheimilisins má sjá hér að neðan. 

Opnunartími að Hlíðarenda yfir hátíðarnar:

  • Fim 22. des 09:00-19:00
  • Fös 23. des lokað
  • Lau 24. des lokað
  • Sun 25. des lokað
  • Mán 26. des lokað
  • Þri 27. des 10:00-20:30
  • Mið 28. des 10:00-22:00 (Valur vs Njarðvík 20:15 í Subway kv.)
  • Fim 29. des 10:00-20:30
  • Fös 30. des Lokað
  • Lau 31. des Íþróttamaður Vals kl. 12:00
  • Sun 1. jan Lokað
  • Mán 2. jan 09:00-20:30
  • Þri 3. jan (Æfingarhefjast skv. æfingatöflu á ný)