Samstarf Vals & Arnarhlíð Sjúkraþjálfun

Frá árinu 2024 hefur verið farsælt samstarf milli Arnarhlíðar Sjúkraþjálfunar og Vals. Ætlunin er að auka enn frekar samstarfið með betri boðleiðum og hraðari aðgengi sem varðar greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu íþróttamanna hjá félaginu.

Arnarhlíð hóf starfsemi sína árið 2024 og hefur verið í góðu samstarfi og verkefnum fyrir íþróttahreyfinguna. Hjá Arnarhlíð starfa  fjórir sjúkraþjálfarar sem flestir hafa  sérhæfingu á ákveðnu sviði innan sjúkraþjálfunar, sem tryggir bestu mögulegu þjónustu fyrir íþróttafólk Vals á öllum aldri.

Sjúkraþjálfarar hafa lagt mikinn metnað í að sérhæfa sig í íþrótta- og verkjaendurhæfingu og bjóða upp á heildræna endurhæfingu fyrir þá sem eiga við stoðkerfis- eða vefjavandamál að stríða.

Starfsemi Arnarhlíðar er staðsett við Arnarhlíð 1, 102 Reykjavík.

  • Afgreiðsla Atlas er opin mánudaga til föstudag frá kl: 8.00 - 17.00
  • Tímapantanir  eru í síma 416-9000 eða á arnarhlid@arnarhlid.is
  • Heimasíða http://www.arnarhlid.is

Einnig hvetjum við iðkendur, þjálfara og aðstandendur að vera í beinum samskiptum við okkur ef einhverjar spurningar koma upp sem varðar greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu íþróttamanna hjá félaginu.

Þeir sem eru í forsvari hjá Arnarhlíð að svara faglegum spurningum eru:

  • Einar Óli einaroli@arnarhlid.is

Ef iðkendur meiðast er best að hafa samband við Arnarhlíð strax:

Einstaklingar eldri en 18 ára

Þeir sem eru eldri en 18 ára þurfa að koma með beiðni frá lækni í sjúkraþjálfun frá fyrsta tíma. Ef engin beiðni er þá taka sjúkratryggingar ekki þátt í niðurgreiðslu meðferðar og viðkomandi greiðir fullt gjald.

Einstaklingar undir 18 ára

Þeir þurfa aðeins að greiða komugjald í sjúkraþjálfun frá fyrsta tíma ef þau eru með beiðni frá lækni. Greiða þarf fullt gjald ef engin beiðni er frá lækni.

Images

 

 

Samstarf Vals & Arnarhlíðar Sjúkraþjálfunar