SJÁLFBÆRNISTEFNA
VALS
Stefna þessi er í samræmi við
Sjálfbærnistefnu UEFA í knattspyrnu 2030
og viðeigandi leiðbeiningar. Stefna þessi nær yfir svið jafnréttis
og almennrar þátttöku, varnir gegn kynþáttafordómum, verndun og
velferð barna og ungmenna, knattspyrnu fyrir alla getuhópa og
umhverfisvernd í samræmi við leyfisreglugerð KSÍ.
Jafnrétti og almenn þátttaka / Equality and inclusion
Valur býður upp á jöfn tækifæri fyrir alla sína iðkendur til
knattspyrnuiðkunar, þ.e. æfingatími, búnaður, þjálfun og
æfingaaðstaða er sú sama hjá hverjum aldursflokki óháð kyni.
Félagið mun leggja áherslu á að taka vel á móti iðkendum sem
tilheyra minnihlutahópum og bjóða þannig upp á jöfn tækifæri fyrir
alla hópa til að stunda knattspyrnu.
Gegn fordómum / Anti-racism
Valur mun ekki líða fordóma af neinu tagi. Á þetta við um
iðkendur, aðstandendur, áhorfendur, starfsfólk og aðra sem koma að
starfi Vals á einhvern hátt. Lögð verður áhersla á að lágmarka
líkur á fordómum innan félagsins með fræðslu og/eða
forvarnarstarfi.
Verndun barna og ungmenna / Child and youth protection
Valur mun leggja áherslu á að vernda iðkendur félagsins fyrir
hvers kyns ofbeldi eða áreitni sem þau geta orðið fyrir, bæði hjá
félaginu og utan þess, og bregðast við verði þau fyrir líkamlegu
eða andlegu áfalli. Verður það gert með því að fræða starfsfólk og
sjálfboðaliða. Notast verður við
viðbragðsáætlun samskiptaráðgjafa íþrótta- og
æskulýðsstarfs vegna atvika og áfalla sem upp geta
komið í starfinu.
Knattspyrna fyrir alla / Football for all abilities
Valur mun leggja áherslu á að haga starfi sínu á þann hátt að
allir sem hafa áhuga geti tekið þátt í starfi Vals á einhvern hátt,
sem iðkendur, áhorfendur, starfsmenn eða sjálfboðaliðar.
Umhverfisvernd / Respect the environment
Valur mun einsetja sér að huga að umhverfisþáttum við innkaup,
viðhald á mannvirkjum, við flokkun á rusli og við framkvæmd
viðburða. Lögð verður áhersla á að endurnýta og endurvinna búnað
sem notast er við í þjálfun og á viðburðum.